Trúnaðarmenn FÍN

  • Brandugla.
    Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir

Trúnaðarmenn FÍN eru fulltrúar félagsins á hverjum vinnustað.  Trúnaðarmenn eru tengiliðir milli félagsmanna á vinnustað og vinnuveitanda annars vegar og milli félagsmanna og félagsins hins vegar.

Hér er að finna lista yfir trúnaðarmenn FÍN á einstökum stofnunum og vinnustöðum. Einnig er hér að finna fræðsluefni fyrir trúnaðarmenn og aðra áhugasama um kjör og réttindi.


Listi yfir trúnaðarmenn FÍN

Vinnustaður  Nafn Kosning útrunnin: 
Actavis Group PTC ehf.
Emelía Eiríksdóttir júní 2020
Alcoa Fjarðarál sf. Enginn   
Alta ehf. Enginn   
Alvotech hf.  Enginn  
Almannavarnadeild ríkislögreglunnar Enginn   
Austurbrú Enginn
Biskupsstofa Enginn
Byggðasafn Skagfirðinga Enginn
Bændasamtök Íslands
Enginn

Efla hf. Enginn   
Ferðamálastofa  Enginn   
Fiskistofa Enginn   
Fjarðabyggð  Anna Berg Samúelsdóttir** sept 2020 
Framkvæmdasýsla ríkisins
Örn Baldursson
okt 2018
Fræðslumiðstöð Vestfjarða  Enginn  
Genís hf. Enginn   
Hafrannsóknarstofnun rannsókna-og ráðgjafarstofnun
hafs og vatna
Sverrir Daníel Halldórsson
Jónína H. Ólafsdóttir*/ Keldnaholt

sept 2018
sept 2018
Háskóli Íslands/Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafr. Enginn
Háskóli Íslands/Tilraunastöð í meinafræði að Keldum
Edda Björk Hafstað Ármannsdóttir mars 2020
Háskóli Íslands/Jarðvísindastofnun
Ríkey Kjartansdóttir apríl 2020
Háskóli Íslands  Enginn   
Háskólinn í Reykjavík ehf.  Enginn   
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis Stefán Már Stefánsson* jan. 2020 
Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis Enginn
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands  Enginn   
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra
Enginn
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða Enginn
Hjartavernd  Stefán Már Stefánsson jan 2020 
Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal  Enginn   
Iceprotein ehf. Stefanía Inga Sigurðardóttir okt. 2020 
Isavia ohf.  Enginn   
ÍSAM ehf.  Enginn   
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn ehf.  Enginn   
Íslensk erfðagreining ehf.  Enginn   
ÍSOR-Íslenskar orkurannsóknir Ásdís Benediktsdóttir  des 2018
KeyNatura ehf.  Enginn   
Kópavogsbær Enginn   
Krabbameinsfélag Íslands
Enginn
Landbúnaðarháskóli Íslands
Fanney Gísladóttir
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
Hlynur Óskarsson
Steinunn Garðarsdóttir
okt. 2019
Landgræðsla ríkisins
Bryndís Marteinsdóttir
Garðar Þorfinnsson
apríl 2020
júní 2020
Landhelgisgæslan Enginn
Landlæknisembættið Enginn
Landmótun sf.  Enginn   
Landmælingar Íslands  Enginn  
Landspítali Háskólasjúkrahús/Blóðbankinn
Freygerður Jóhanna Steinsdóttir
mars 2019
Landspítali Háskólasjúkrahús/Blóðbankinn Sunna Helgadóttir
mars 2019 
Landspítali Háskólasjúkrahús/ónæmisfræðid.
Una Bjarnadóttir jan 2019
Landspítali Háskólasjúkrahús/veirudeild Máney Sveinsdóttir nóv 2019 
Landspítali Háskólasjúkrahús  Enginn   
Landvernd  Enginn   
Landsvirkjun Enginn  
Lyf og heilsa hf.  Enginn   
Lyfjastofnun Guðbjörg Þ. Örlygsdóttir
sept. 2018
Lýsi hf.  Enginn  
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Enginn
Mannvit Enginn
Matís ohf.  Enginn   
Matvælastofnun Enginn
Náttúrufræðistofa Kópavogs Stefán Már Stefánsson*
jan. 2020
Náttúrufræðistofnun Ísland
Enginn
Náttúrustofa Austurlands Hafdís Sturlaugsdóttir* apríl 2020
Náttúrustofa Norðausturlands Hafdís Sturlaugsdóttir * apríl 2020 
Náttúrustofa Norðurlands vestra  Hafdís Sturlaugsdóttir* apríl 2020 
Náttúrustofa Suðausturlands Hafdís Sturlaugsdóttir* apríl 2020 
Náttúrustofa Suðurlands  Hafdís Sturlaugsdóttir* apríl 2020 
Náttúrustofa Suðvesturlands Hafdís Sturlaugsdóttir * apríl 2020 
Náttúrustofa Vestfjarða
Hafdís Sturlaugsdóttir*
apríl 2020
Náttúrustofa Vesturlands  Hafdís Sturlaugsdóttir * apríl 2020 
Nýsköpunarmiðstöð Íslands Sigurlaug María Hreinsdóttir
mars 2020
ORF Líftækni hf. Enginn  
Orkustofnun  Enginn   
Orkuveita Reykjavíkur
Simon Harald Kluepfel júní 2020
Rannsóknamiðstöð Íslands / RANNÍS  Enginn   
Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. Enginn  
Raunvísindastofnun Háskólans Enginn   
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. Enginn
Reykjavíkurborg
Björg Helgadóttir (Framkvæmda- og eignasvið)
Svava S. Steinarsdóttir (Umhverfis- og skipulagssvið)
nóv 2019
nóv. 2019

Reykjalundur Enginn
Ríkiskaup Egill Skúlason Langdal okt 2019 

Ríkislögreglustjóri

Enginn
Skipulagsstofnun Ester Anna Ármannsdóttir okt.2018
Skógræktin
Hraundís Guðmundsdóttir
Ólafur Eggertsson
jan 2019
jan 2019

Skógræktarfélag Íslands

Ragnhildur Freysteinsdóttir *

júní 2019
Stofnfiskur hf. Enginn   
Sveitarfélagið Skagafjörður Enginn   
Umhverfisstofnun Sigríður Kristinsdóttir
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
júní 2020 
júlí 2020
Vatnajökulsþjóðgarður  Steinunn Hödd Harðardóttir júní 2020 
Veðurstofa Íslands
Benedikt G. Ófeigsson
Kristín Elísa Guðmundsdóttir
maí 2020
maí 2020
Vegagerðin  Enginn   
Verkís hf.  Enginn   
Vistor hf.  Enginn   
VSÓ Ráðgjöf ehf.  Enginn   
Ölgerðin Egill Skallagríms hf. Enginn  
Össur Iceland ehf.  Enginn   

* Sameiginlegir trúnaðarmenn nokkurra stofnana.

**Sameiginlegur trúnaðarmaður fyrir öll stéttarfélög BHM á vinnustaðnum.

Trúnaðarmannakosning

  • Val á trúnaðarmanni skal tilkynna vinnuveitanda og stéttarfélagi þegar í stað, með meðfylgjandi eyðublöðum:                                   Eyðublað fyrir trúnaðarmenn á opinberum vinnumarkaði og eyðublað fyrir trúnaðarmenn á almennum vinnumarkaði.

Leyfilegur fjöldi trúnaðarmanna á vinnustað 

  • Almennur vinnumarkaður 

    Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er heimilt  að kjósa trúnaðarmann á hverri vinnustöð þar sem starfa a.m.k. fimm félagsmenn.

  • Opinber vinnumarkaður (sveitarfélög og ríkisstarfsmenn) 

    Í lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er fjöldaviðmið víðara og er heimilt að kjósa 2 trúnaðarmenn á vinnustöð þar sem 50 eða fleiri starfa.  Samkvæmt fyrrnefndum lögum er heimilt að kjósa trúnaðarmenn fyrir félagssvæði eða hluta þess vegna starfsmanna á vinnustöðvum sem ekki uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda. Einstökum stéttarfélögum er heimilt að semja um aðra skipan á vali trúnaðarmanna en að framan greinir. Þá er heimilt að sameinast um trúnaðarmenn ýmist fyrir landssvæði, fleiri en eina stofnun eða milli stéttarfélaga hjá opinberum starfsmönnum.b. Samkvæmt "Samkomulagi um trúnaðarmenn hjá ríki, Reykjavíkurborg og ýmsum sjálfseignarstofnunum" er heimilt á þeim vinnustöðum þar sem starfsmenn vinna samkvæmt mismunandi vinnutímakerfum að kjósa einn trúnaðarmann hið  minnsta fyrir hvert vinnutímakerfi.

Kjörtímabil trúnaðarmanna

  • Kjörtímabil trúnaðarmanna er 2 ár í senn.  Ef  trúnaðarmaður er ekki endurkjörinn missir hann eftir 2 ár þá vernd og réttindi sem hann annars nýtur samkvæmt lögum.

Skipun kjörstjórnar

Kjörstjórn sér um allan undirbúning kosningar trúnaðarmanns/trúnaðarmanna

Í mars annað hvert ár sendir félagið út drög að kjörskrá til sitjandi trúnaðarmanna og trúnaðarmenn þurfa að bera þennan lista saman við upplýsingar frá atvinnurekanda.  Sé einhverjum ofaukið eða ef einhvern vantar þarf að leiðrétta kjörskrána og senda hana til félagsins. Trúnaðarmenn senda tölvupóst á félagsmenn og óska eftir tilnefningum í kjörstjórn. Bjóði enginn sig fram velur trúnaðarmaður 2 í kjörstjórn. Þar sem ekki er starfandi trúnaðarmaður og starfsmenn vilja kjósa sér trúnaðarmann þá getur félagið tekið að sér undirbúning sem annars fráfarandi trúnaðarmaður sér um.

  1. Kjörstjórn tilkynnir öllum félagsmönnum að kosning trúnaðarmanns standi fyrir dyrum og hverjir sitji í kjörstjórn.
  2. Kjörstjórn sendir á alla sem eru á kjörskrá og óskar eftir frambjóðendum og getur þess jafnframt hvort núverandi trúnaðarmaður gefi kost á sér áfram.  Gefinn skal hæfilegur frestur, ein vinnuvika, til að tilnefna frambjóðendur. Athugið að starfsmenn í fæðingarorlofi, foreldraorlofi, launalausu leyfi eða í veikindaleyfi eiga einnig að vera á kjörskrá.
  3. Kjörstjórn tilkynnir félagsmönnum á kjörskrá hverjir séu í framboði og tilgreinir kjördag.  
  4. Kjörstjórn sendir út kjörseðla og setur upp kjörkassa þar sem félagsmenn eiga að afhenda atkvæði sitt.  Heimilt er að hafa rafræna kosningu og getur félagið séð um hana ef kjörstjórn óskar þess.  Kosning skal í öllum tilvikum vera leynileg. (Ef aðeins einn er í framboði til trúnaðarmanns er hann sjálfkjörinn trúnaðarmaður).
  5. Kjörstjórn telur atkvæði eftir að kosningu er lokið.  Sá/þeir sem fá flest atkvæði teljast löglega kosnir trúnaðarmenn.  
  6. Kjörstjórn tilkynnir atvinnurekanda, félaginu og félagsmönnum um niðurstöðu kosningarinnar.
  7. Kjörstjórn sér til þess að atvinnurekandi undirriti þar til gert eyðublað og  kjörstjórn kemur því eyðublaði  til félagsins.  
  8. Trúnaðarmaður telst ekki fá réttarstöðu og lögbundna vernd trúnaðarmanns nema að kosning hafi verið tilkynnt skriflega og sannanlega til vinnuveitanda á umræddu eyðublaði.
  9. Kosningarétt hafa allir félagsmenn sem eru með fulla aðild að félaginu 1. mars ár hvert.

Ítarefni 

Ákvæði um trúnaðarmenn í samningum og lögum

Fræðsluefni fyrir trúnaðarmenn